Skilmálar
1. Skilgreiningar og almenn ákvæði
Í þessum skilmálum merkir:
Sýn – Sýn hf., kt. 470905-1740, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík.
Já+ – stafræna þjónusta Sýnar sem felur í sér uppsetningu, uppfærslu, stjórnun og miðlun upplýsinga Viðskiptavina á stafrænum vettvöngum, þar á meðal leitarvélum, kortakerfum, umsagnarkerfum, samfélagsmiðlum og vefsvæðum samstarfsaðila, ásamt ráðgjöf og skýrslugerð.
Viðskiptavinur – lögaðili sem gerir samning við Sýn um notkun Já+.
Gögn – allar upplýsingar sem Viðskiptavinur lætur Sýn í té eða sem Sýn vinnur úr í tengslum við Já+, þar með talið myndir, merki, textar, upplýsingar um vörur/þjónustu og aðrar skráningarupplýsingar.
Verðskrá – gildandi verðskrá fyrir Já+ og tengda þjónustu, birt á Já.is eða syn.is.
Skilmálar þessir taka til kaupa Viðskiptavinar á Já+. Með samþykki sínu staðfestir Viðskiptavinur að hann hafi lesið skilmálana, kynnt sér efni þeirra til hlítar og samþykki þá í einu og öllu.
Að öðru leyti en kveðið er á um í skilmálum þessum gilda almennir skilmálar Sýn hverju sinni um notkun á miðlum Sýn sem aðgengilegir eru á heimasíðunni www.syn.is
2. Umfang þjónustunnar Já+
Já+ þjónustan felur í sér að Sýn setur upp, viðheldur og uppfærir upplýsingar Viðskiptavinar á þeim stafrænu vettvöngum sem þjónustan nær til. Umfang ræðst af þeirri þjónustuleið sem valin er og kemur fram í verðskrá.
Sýn ábyrgist ekki tiltekinn árangur í leitarvélum eða á öðrum vettvöngum þriðja aðila.
3. Gögn og ábyrgð Viðskiptavinar
Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á öllu efni sem hann lætur í té og tryggir að það sé rétt, löglegt og ekki brjóti í bága við höfundarrétt eða önnur réttindi.
Viðskiptavinur veitir Sýn heimild til að birta, breyta og vinna með gögn í þeim tilgangi að veita þjónustuna.
4. Réttur Sýnar vegna efnis
Sýn getur hafnað, breytt eða fjarlægt efni sem er ólögmætt, villandi, brýtur gegn skilmálum eða hentar ekki tæknilegri uppbyggingu þjónustunnar.
5. Persónuvernd
Vinnsla persónuupplýsinga fer fram samkvæmt persónuverndarstefnu Sýnar hf.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að afla nauðsynlegra samþykkja ef gögn innihalda persónuupplýsingar þriðja aðila.
6. Gildistími samnings og framlenging
Samningur um Já+ er gerður til 12 mánaða og framlengist sjálfkrafa um 12 mánaða í senn nema honum sé sagt upp skriflega með 30 daga fyrirvara.
7. Uppsögn á samningstíma
Viðskiptavinur getur sagt skriflega upp á samningstíma en greiðir þá þriggja mánaða uppsagnargjald eða eftirstandandi ársgjald, eftir því hvort er hærra.
Kjósi Viðskiptavinur að segja upp þjónustunni ber að Viðskiptavini að tilkynna það skriflega í tölvupósti á netfangið: japlus@japlus.is.
8. Gjöld og greiðslur
Viðskiptavinur skuldbindur sig til þess að greiða fyrir þjónustuna í samræmi við verðskrá Já+ hverju sinni og miðað við þá þjónustuleið sem er valin. Verðskráin er birt á vefsíðunni japlus.is og er að jafnaði endurskoðuð árlega.
Reikningstímabil fyrir þjónustuna eru 12 mánuðir og skal greidd í einu lagi nema um annað sé samið. Eindagi skal vera 30 dögum eftir útgáfudag reiknings. Sé reikningur greiddur eftir eindaga greiðir Viðskiptavinur dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags skv. III kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, með síðari breytingum.
Sýn áskilur sér rétt til að synja viðskiptavini um þjónustu, sem og fjarlæga gögn Viðskiptavinar á miðlum Sýnar, komi til þess að reikningur hafi ekki verið greiddur þegar liðnir eru 30 dagar frá gjalddaga reiknings eða ef Viðskiptavinur brýtur gegn skilmálum þessu að öðru leyti.
Gjöld samkvæmt gildandi verðskrá, m.a.:
- Já+ Standard: 79.950 kr
- Já+ Pro: 98.900 kr
- Já+ Vefsíða: 39.900 kr
- Uppsetningargjald: 43.000 kr
- Viðbótarþjónusta: 14.900 kr/klst
9. Takmörkun ábyrgðar
Sýn ber ekki ábyrgð á röðun í leitarvélum, sölu, traffík eða tjóni sem rekja má til þriðju aðila. Hámarksábyrgð Sýnar er ársgjald síðustu 12 mánaða.
Um vanefndir og vanefndarúrræði fer eftir almennum reglum kröfuréttar, sbr. þó 2. og 3. mgr.
Sýn skal undanþegið skaðabótaábyrgð, bæði innan og utan samninga, vegna hvers lags mögulegs tjóns Viðskiptavinar sem hann kann að verða fyrir á grundvelli þessa samnings, nema að tjón megi að sönnu rekja til ásetnings eða stórkostlegs gáleysis starfsmanna Sýnar og að uppfylltum öðrum skilyrðum skaðabótaábyrgðar skal bótaábyrgð þá ætíð takmörkuð við beint tjón.
Viðskiptavinur ábyrgist að tryggja skaðleysi Sýnar vegna hvers lags tjóns, beinu og óbeinu, sem Sýn kann að verða fyrir vegna saknæmra og/eða ólögmætra athafna og athanaleysis Viðskiptavinar á grundvelli samnings þessa.
10. Hugverkaréttur
Viðskiptavinur heldur réttindum yfir eigin efni. Sýn heldur höfundarrétti yfir efni sem unnið er í þjónustunni.
11. Tilkynningar
Tilkynningar eru sendar á skráð netfang tengiliðar og teljast mótteknar næsta virka dag.
12. Trúnaður
Aðilar skuldbinda sig meðal annars til að gæta fyllsta trúnaðar um hverskonar gögn og upplýsingar sem mótteknar eru frá gagnaðila, þ.m.t. upplýsingum um stjórnunarlegar, fjárhagslegar eða tæknilegar aðstæður gagnaðila, og aðrar aðstæður varðandi rekstur, viðskipti eða atriði sem ætla má að teljist til trúnaðarupplýsinga eftir efni og eðli sínu.
Trúnaðarskyldan gildir áfram eftir að notkun á Já+ lýkur.
13. Lög og ágreiningur
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningsefni í tengslum við túlkun skilmála þessara eða samninga sem gerðir eru á grundvelli þeirra, sem ekki tekst að leysa úr skal sá ágreiningur vera rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.